Draumurinn um íþróttamiðstöð
Upphaflegt deiliskipulag sýndi framtíðarsýn um íþróttasvæði ÍR.
Deiliskipulag fyrir Suður-Mjódd frá árinu 2009 sýnir vel hvernig umrætt svæði var hugsað; hjartað yrði íþróttasvæði ÍR, með íbúðum fyrir aldraða í Árskógum og atvinnuhúsnæði meðfram Reykjanesbraut til að draga úr umferðarhávaða. Á miðsvæðinu C-1, Álfabakka 2-4, var gert ráð fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi og stjórnsýslu og heimild til að byggja á 5-7 hæðum, allt að 22.500 fermetra með bílastæðahúsi/kjallara.
„Byggingarreitir eru skilgreindir þannig að byggingarlína er bindandi að hluta að Reykjanesbraut og er markmiðið að byggingar myndi stallaðan en órofa vegg að Reykjanesbraut en til suðurs opni byggingar sig að innigörðum ofan á efri hæð bílageymslu."
— Greinargerð með deiliskipulaginu